AD - Júní peysa úr lambsull
AD - Júní peysa úr lambsull
AD - Júní peysa úr lambsull
AD - Júní peysa úr lambsull
AD - Júní peysa úr lambsull
AD - Júní peysa úr lambsull

AD - Júní peysa úr lambsull

Verð
29.900 kr
Söluverð
29.900 kr


Júní peysa
Peysan er prjónuð með garðaprjóni úr lambsull með fallegu smáatriði á ermum. Hún er einstaklega hlý og létt. 

 

Meðhöndlun á flík
Gott er að viðra flíkina og oftast er það nóg. 
Þurrhreinsun ef þörf er á að þvo alla flíkina. 
Hægt er að blettahreinsa eða handþvo með volgu vatni og mildri ullarsápu.


Lambsull
Haustið 2020 kom á markað nýtt íslenskt lambsullarband sem hefur verið í þróun síðastliðin ár hjá VARMA og Ístex. Bandið er mýkra en það sem við höfum áður þekkt í íslensku vélprjónabandi en við þróun bandsins var farið yfir alla verkferla allt frá rúningu, þvotti, spuna og prjóni til þess að mýkja áferð bandsins. 

 

AD
Er stofnað árið 2017 af fatahönnuðinum og jógakennaranum Sigrúnu Höllu Unnarsdóttur. AD vill leggja sitt af mörkum við að skapa vistvænan feril er viðkemur framleiðslu, upplifun og notkun á fatnaði. AD vill einnig vekja athygli á þeim verðmætum sem felast í prjónaverksmiðjunni VARMA í hinum hverfula heimi fataframleiðslu á Íslandi, ekki síst í sögu- og menningarlegu samhengi.

 

Kostir þess að klæðast náttúrulegum hráefnum
Flíkur úr náttúrulegum hráefnum eru með "náttúrulega" tíðni. Atóm sem búa til allt í kringum okkar eru alltaf að titra á ákveðinni tíðni. Frá hverju einasta líffæri í líkamanum þínum yfir í stólinn sem þú situr á, allt ómar í ákveðinni tíðni. Hærri tíðni fylgir betri heilsa - en það er hugmyndafræði sem hefur verið samþykkt í mörgþúsund ár í austurlenskum læknavísindum en er nýrri fyrir okkur í vestræna heiminum. Þetta er líffræði sem við erum að læra meira og meira um eftir því sem tæknin til þess að mæla tíðni verður betri. Sum okkar hafa heyrt þetta áður í gegnum jógaiðkun, að náttúrulegar trefjar hjálpi til við að eyða burtu stíflum í orkuflæði líkamans.